Færsluflokkur: Tölvur og tækni
31.3.2008 | 10:51
Puppylinux
Um daginn sóttum við hjónin útgáfu af Linux stýrikerfi sem er hægt að setja á 2GB minnislykil og nota síðan minnislykilinn bæði sem stýrikerfi og til að vista á hann. Þið getið skoðað þetta nánar á eftirfarandi tenglum.
http://www.puppylinux.org/user/viewpage.php?page_id=3
http://www.puppylinux.org/user/downloads.php
Laufey
22.3.2008 | 01:26
Linux Ubuntu
Einn nemandi minn kom í tölvutíma með Ubuntu stýrikerfi á geisladisk og sýndi hópnum hvernig það virkar. Hann sýndi mér hvar hann hafði pantað geisladiskinn og ég pantaði nokkra. Þeir voru að koma í pósti. Eftir að hafa skoðað það líst mér vel á þessa útgáfu af Linux stýrikerfi og ég mæli með því að tölvukennarar panti sér eintak til að prófa. Þetta er opinn hugbúnaður, svo hann er ókeypis og fæst á síðunni www.ubuntu.com Það má líka fjölfalda hann og dreifa honum, svo fremi sem það sé ókeypis.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.3.2008 | 13:44
Tölvuval
Eitt af því sem margir tölvukennarar sem ég tala við eru í vandræðum með er tölvuval. Þar eru nemendur svo mislangt komnir og hafa mismunandi áhugasvið innan tölvutækninnar. Ég hef verið svo heppin í vetur að vera með sérlega áhugasama tölvuvalshópa og það hefur gengið mjög vel. Eins hef ég haft meiri tíma til að grúska í þessu sjálf eftir að hafa lokið kennaranáminu síðasta sumar.
Þeir sem vilja geta vistað skrána sem er með þessari færslu, þetta er kennsluáætlunin sem ég nota fyrir tölvuvalstímana sem ég er með í gangi núna. Kannski gagnast hún einhverjum ykkar. Látið mig vita hvort þið viljið að ég setji inn eitthvað af kennsluefninu sem ég hef sett saman fyrir tölvuvalið, það er hægt að setja inn athugasemdir við þessa færslu.
P.s. Eftir að hafa kennt tölvuvalstíma í nokkra vetur, tel ég alfarsælast að kenna það í tvöföldum tímum. Það gengur afar illa að sökkva sér ofan í verkefnin í einföldum tímum.
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.2.2008 | 20:13
Vefumhverfi nemenda
Um miðjan janúar fór ég til London ásamt þremur öðrum frá Ísafjarðarbæ. Við fórum á sýningu sem nefnist Bettshow. Hún er miðuð við menntunargeirann og þar kynna ýmis fyrirtæki í tölvugeiranum það sem þau hafa að bjóða. Einnig eru fyrirlestrar frá aðilum sem standa framarlega í kennslu á þessu sviði. Ég fór á nokkra fyrirlestra og fékk fullt af hugmyndum út frá þeim. Ein af þeim var þessi bloggsíða. Það er nefnilega ensk spjallsíða fyrir kennara, n.k. vefumhverfi þar sem fólk getur sett inn umræðustrengi, deilt reynslu sinni og leitað ráða. Vitið þið hvort það sé eitthvað fyrirtæki hér á landi sem býður upp á slíkt fyrir kennara? Ef ekki, hver haldið þið að gæti sett slíkt upp?
Annað sem ég sá var vefumhverfi fyrir nemendur, þar sem þeir byggja upp eigið verkefnasafn, þeim eru sett fyrir verkefni inni á svæðinu og fá endurgjöf frá kennara. Þetta er nýjasta nýtt í Englandi þar sem það er nýbúið að setja í lög að allir nemendur eigi að hafa aðgang að slíku svæði fyrir ágúst 2008. Á fyrirlestri kynnti kennari sína aðferð, sem er að láta nemendur setja upp bloggsíður þar sem hann setur þeim fyrir verkefni, þeir vinna verkefnin og hjálpast jafnvel að í skapandi skrifum, setja fram sögu í fimm myndum sem þeir taka á gemsana sína og setja svo inn í albúm á bloggsíðunni. Aðrir nemendur geta svo sett athugasemdir við myndirnar þar sem þau reyna að lesa söguna úr myndunum. Ég er að gera tilraun með 8. bekk þar sem ég læt þau setja upp læstar skólabloggsíður og þau eiga svo að skila þeim verkefnum sem gilda til prófs inn á bloggsíðuna. Ég er með lykilorðin að síðunni þannig að nemendur geta fengið þau hjá mér þegar þeir gleyma aðgangsupplýsingunum. Tölvuvalshóparnir í 9. og 10. bekk munu líka skila sínum verkefnum á sama hátt. Krakkarnir hafa líka verið með síður á Skólatorginu, en mér finnst þær svo takmarkaðar. Samt er í fínu lagi að nota þær á miðstiginu eins og við gerum. Meira seinna.
Laufey
27.2.2008 | 20:46
Að setja upp bloggsíðu
Sumum finnst betra að hafa leiðbeiningar við höndina þegar þeir eru að setja upp bloggsíðu. Skráin sem er hér í viðhengi er með leiðbeiningum sem ég bjó til handa nemendum mínum. Þessa önn er ég að gera tilraun með 8. bekk og tölvuvalskrakkana í 9. og 10. bekk, þar sem ég læt þau setja upp skólabloggsíðu á blog.is (læstar) til að nota sem verkefnamöppur og vinnusvæði.
Laufey
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2008 | 19:03
Scratch
Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 20:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2008 | 22:26
Kæru kennarar!
